þriðjudagur, september 27, 2005

Ohhh - greyið ég.
já ég ligg hérna í sjálfsvorkun enda að skríða inn í fjórða dag af veikindum. Ég er búin að vera með hita og beinverki ásamt leiðinlegum hósta sem er að gera mig brjálaða. Ég er nú samt ekki frá því að þetta sé að verða búið - dagurinn í dag er sá besti, var bara með 38,3 stiga hita í morgun og ekki eins slæm af beinverkjunum. Eins og venjulega vel ég mér besta tímann til að vera veik, Egill er á fullu að sækja um styrk og var þar af leiðandi að vinna alla helgina og Eydís var í fríi í skólanum í gær. En það þýðir ekkert að velta upp úr þessu - þetta hlýtur að verða búið bráðum.
Nú - af hinu liðinu er allt fínt að frétta (Egill heldur reyndar að hann sé að verða veikur líka) en krakkarnir eru hress (og það er fyrir mestu).
Einar litli er lítið farin að tala nema bara sitt eigið tungumál (og getur malað og malað án þess að neinn skilji). Hann segir samt Dudda (snudda), Eydi (Eydís) og kahedda (hvað er þetta). Hann neitar alveg að segja pabbi og í hvert sinn sem hann er beðin um að segja PABBI kemur "mammi" - Agli til mikillar angistar. Hann notar "mamma" um allt sem hann langar í (aðallega mat) en hann er mikið matargat. Hann borðar bókstaflega allan daginn enda orkumikill krakki sem hefur mikið að gera. Hann fer alveg sjálfur upp og niður tröppurnar og hraðinn er slíkur að það er eins og hann sé í rennibraut. Hann klifrar líka upp í sófann og hókus pókus stólinn sinn án vandræða.
Jæja - nú vill herra Einar fá athygli þannig að við látum þessum lofræðum lokið í bili
kv. Ragna

5 Comments:

At 1:36 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Úff, samúðarkveðjur héðan frá mér - ekki gott að vera veikur og hugsa um börnin líka. Vonandi ertu að ná þér af þessu og krakkarnir sleppi við þetta.
Góðan bata!
Lísa

 
At 7:48 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég vona að þú hafir ekki gengið fram af þér við að aðstoða mig við ritgerðina og ég vona svo sannarlega að þú náir þér og restin af fjölskyldunni standi þetta af sér. Kysstu rassgatið hann Einar í klessu frá mér.

 
At 8:45 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hafðu góðan bata! Það er rétt eins og Lísa segir, það er ekki hangið í rúminu þó maður sé veikur!
Knúsar og kossar (samt bara á kinnina, svo engin smitist ;o) ) frá Danaveldi,
Addý

 
At 2:02 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ninest123 10.31
michael kors outlet, tiffany jewelry, replica watches, michael kors outlet, louis vuitton outlet, prada handbags, michael kors outlet, jordan shoes, polo ralph lauren outlet, prada outlet, kate spade outlet, louis vuitton, chanel handbags, louis vuitton, michael kors outlet, ray ban sunglasses, coach outlet, christian louboutin outlet, burberry outlet online, oakley sunglasses, ray ban sunglasses, polo ralph lauren outlet, oakley sunglasses, tiffany and co, nike air max, ugg boots, ugg boots, replica watches, nike air max, louboutin outlet, kate spade handbags, cheap oakley sunglasses, nike outlet, ray ban sunglasses, louboutin, burberry, louis vuitton outlet, oakley sunglasses, gucci outlet, nike free, longchamp outlet, oakley sunglasses, longchamp outlet, tory burch outlet, michael kors, louboutin shoes, louis vuitton, ugg boots, michael kors outlet

 
At 1:29 f.h., Blogger mmjiaxin said...

ralph lauren outlet
adidas wings shoes
cheap ugg boots
wedding dresses uk
ugg boots
tiffany and co
mcm backpack
tory burch outlet online
michael kors handbags clearance
coach outlet
oakley sunglasses
christian louboutin,louboutin,louboutin outlet,louboutin outlet italia,scarpe louboutin
rolex watches
louis vuitton,borse louis vuitton,louis vuitton sito ufficiale,louis vuitton outlet
nike free uk
ugg boots clearance,ugg australia,uggs on sale,ugg slippers,uggs boots,uggs outlet,ugg boots,ugg,uggs
ugg outlet store
abercrombie and fitch
uggs outlet
louis vuitton outlet store
mm1201

 

Skrifa ummæli

<< Home