fimmtudagur, september 13, 2007

Allt gott og ekkert gott.
Já - eins og venjulega læt ég allt of langan tíma líða á milli þess sem ég skrifa á þetta blessaða blogg. Á meðan gerast svo margir hlutir að ég ræð ekkert við að koma því frá mér. Þá gríp ég til þess gamalkunna ráðs að stikla á stóru um atburði síðastliðna vikna.
Brúðkaup Láru: Við fórum í brúðkaup Láru og Halla þar síðustu helgi. Mikið rosalega skemmti ég mér vel. Lára var ein sú glæsilegasta brúður sem ég hef séð og Halli var líka fínn :-) Undirbúningurinn fyrir þetta brúðkaup var rosalegur en ég lærði líka helling af nýjum hlutum. Þar á meðal lærði ég á Windows Movie Maker sem er rosalega skemmtilegt forrit.
Brúðkaup Ingunnar: Síðustu helgi var svo brúðkaup Ingunnar og Viktors. Þar var ég bara venjulegur gestu og þótti mér það bara fínt. Ég skemmti mér líka rosalega vel hjá þeim og naut þess að geta horft og hlegið á öll þessi flottu atriði sem þar voru. Ingunn var æðislega flott í sérsaumaða kjólnum sínum og dansinn þeirra í lokinn fékk mig (gamla jaxlinn) til að fá tár í augun. Kolla og Bjössi gistu hjá okkur í tvær nætur í tilefni að brúðkaupinu og var rooosalega gaman að fá þau í heimsókn, svoooo langt síðan að maður hefur hitt þau.
Húsið: Egill réðst á húsið í vikunni og ég er ekki frá því að það líti bara betur út þótt það sé flekkótt með afbrigðum og stillansar hangandi utan á því. En núna er það algerlega tilbúið fyrir múrarann og smiðinn og ef þeir álpast inn á síðuna mína þá er hérmeð óskað eftir vinnu þeirra !!
Fjölskyldan: Það stækkaði í fjölskyldunni okkar í fyrradag þegar að nýr fjölskyldumeðlimur kom í bæinn. Litli kettlingurinn heitir Loppa og er ferlega skemmtilegt dýr. Hún hoppar og skoppar út um allt milli þess sem hún mjálmar ef maður hverfur úr augsýn. Krakkarnir eru að sjálfsögðu rosalega spennt fyrir henni og reyna allt til að fá hana til stoppa í smá stund og gefa henni knús (sem kisa er ekkert sérstaklega hrifin af).

Upplestri er lokið í bili - geri mitt besta að blogga aftur fyrir mánaðarmót !!
kv. Ragna

4 Comments:

At 12:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ og takk fyrir síðast! Það var líka rosalega gaman að fá að koma í heimsókn.
Knús, Kolla

 
At 3:58 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Heilmikið að ske hjá fólkinu í Háagerði. Gangi vel með iðnaðarmenn í blíðu og stríðu.
Kveðjur úr blíðunni í Staðarsveit :)
Skotta biður að heilsa Loppu.

 
At 11:19 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með kisuna!! Það er merkilegt hvað ein lítil kisa getur kryddað upp á lífið.

 
At 12:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að lesa og frétta af brúðkaupum, næturgestum, kettlingum og framkvæmdum. Blíðar heilsur úr 42 gráðum og sól!
Ágústa og aðrir vistmenn Sjöunnar!

 

Skrifa ummæli

<< Home